Landið mitt og landin.

Jæja,þá er bara komið nýtt ár og ég hef ekki skrifað hér í einhver ár. Af nógu hefur svo sem verið að taka,kanski bara leti í mér. Eitt mál hefur brunið á mér sem er Orkupakki 3. Þetta var samþ. á alþingi í haust 2019 því miður. Forsetanum send nokkur þúsund undirskriftir um að koma þessu í allsherjar þjóðaratkvæðagreiðslu. En engar athugasemdir komu úr þeirri áttini!! Sorglegt að ég bloggaði einmitt um kjör forseta fyrir síðustu kosningar um embættið og spáði því að þegar kæmu viðkvæm mál væru menn búnir að tryggja sig gegn þjóðini. Vill auðvitað ekki gera lítið úr embættinu sem slíku. Vonandi verður hópur vaskra manna sem gefa kost á sér í næstu forsetakosningum. Menn sem segja "hér er bil milli þings og þjóðar" og þetta mál verður að greiða atkvæði með þjóðinni sjálfri. Í framhaldi verður þingið að fara til Brusel og semja upp á nýtt við EU eða ganga út ella. Því miður held ég að þingið vanti einurð og EINLÆGAN vilja til að gera það sem þjóðin vill. Spurning um laun og eftirlaun. Nú hugsa menn og annar, hvað er maðurinn að tala um, hefur hann ekki lesið stefnu flokkssins og að við erum að berjast við að ná stefnumálum okkar í gegn. Þá segji ég, "er það?" Held nefnilega að flest mál ná í gegn með allskyns skranbíttum sem þynnir flest mál út. Og ef stjórnarandstaðan nær spotta til að bíta í hangi hún þar bara til að skammast í stjórnini í stað þess að koma með nýja og flotta tillögu. Einn þingmaður stjórnarinnar greiddi atkvæði gegn Orkupakka3 (takk fyrir það) en þá er eins og menn eins og pí_ratar hafi fengið skotleyfi á hann, eins og menn þurfi ekkert að taka í þátt í uppbyggilegri vinnu á þinginu heldur eingöngu niðurrif. Mjög skrítið allt. Margir hafa gagnrýnt Miðflokkinn fyrir að tefja þingið í vor vegna Orkupakkans,en þeir voru þó að tala fyrir munn meirihluta þjóðarinnar. Þó ég sé ekki (en) þeirra maður þá fannst mér þetta vera það sem fólk vildi Þ.E. þjóðararkvæðagreiðslu um O3 Nú er þessi pakki byrjaður að tikka inn, allir vilja eiga vindmillur sem einhver á að kaupa rafmagn af. Skiptir engu þó betri kostir eru í framleiðslu á ragmagni og svo eigum við "þjóðin" að borga tenginguna við landsnetið og væntanlegan kapal út. Mitt atkvæði liggur ekki þarna. Væri mun nær að nýta okkar orku til góðra mála heima við. 


Forsetaembættið til sölu?

Gott fólk. Við erum um það bil að velja forseta til næstu fjögura ára. Við erum líka að afnema höftunum!! Þeir sem fylgjast með pólitík í Ameríku vita að sá vinnur sem hefur úr mestu að moða, er sem sagt ríkur eða hefur aðgang að fé, nú eða mikin aðgang að fjölmiðlum. Sá sem hefur aðgan að þessum atriðum báðum hlítur að ná langt að minsta kosti. Ég spyr mig þessarar spurningar, er samband á milli þess að einn frambjóðandi dúkkar upp eftir að fjölmiðlar hafa hampað honum í marga mánuði á undan framboði og getur haft fjölda manns í launaðri vinnu í marga mánuði?? Aðrir verða að treysta að mestu á sjálfboðaliða. Getur verið að samband sé á milli þeirra sem eiga fé (hér og þar í skattaskjólum og vogunarsjóðum) og eins frambjóðandans? Væri nú ekki amalegt að hafa forseta í vasanum ef mikið liggur við og allir vilja kjósa um eithvert mál en þeir vilja það ekki. Kanski er þessi ótti minn ástæðulaus, en eitthvað er skrýtið við framboð sem byrjar á 60-70% atkvæða. Eru þessir sömu fjölmiðlar ekki að gera könnun? Hver reiknar stigin. Skoðanakönnun er skoðunarmynndandi. Menn segja að forseti hafi engin völd, Ólafur Ragnar veit betur og nýtti sín völd eins og alþjóð veit. Dæmi um vinavæðingu forsetans úr hans tíð eru fjölmiðlalögin. Þar var hann að gera góðum vinum greiða ,Jóni og Ingib. Útkoman er þessi dæmalausa saga 365 veldissins og annara fyrirtækja undir sömu eigendum, sem hefur ekkert breyst þrátt fyrir hrunið hjá okkur hinum! Mín spurning er þessi, ef ég á nokkur þúsund miljónir, væri það ekki sterkur leikur að kaupa eitt forsetaembætti fyrir 100 miljónir og geta seinna komið í veg fyrir að ég þyrfti að borga 2000miljónir (tvö þúsund miljónir)í skatt. Góð fjáfesting þar. Við erum að velja til næstu fjögura ára. Hver af þessu frambjóðendum kæmist að niðurstöðu vegna reynslu og hver fengi ráð hjá ??.


Kærleikur

Gleðileg jól kæru þið. Datt í hug að setjast við tölvuna og skrifa um kærleika. Ekki það að ég viti meira um hann en hver annar. Hann er bara svo frábær. Veit ekki um neinn annan sjóð sem vex við það eitt að veita úr honum. Hann semsagt verður stærri og meiri við það eitt að gefa vaxtalaust úr þessum frábæra sjóði "kærleikssjóðnum" og allir geta verið með og gefa! Það var bankað hjá mér kl 4 á aðfangadag. fyrir utan stóðu þrjú börn nágranna okkar, þeim langaði að gefa mér og konunni minni jólakort og lítin pakka. Ég sagðist ekki vera með neinn pakka fyrir þau, jú það var allt í lagi, þeim bara langaði að gleðja okkur. Vá ef þetta er ekki kærleikur til náungans, hvað þá, þau voru 4 - 7 og 10 ára sirka. Oft finnst okkur að ef gjafir eru ekki stórar eða ekkert er tilefnið, hljóti þetta að vera hællærislegt. Samt finnst flestum gaman að gera gott. Við erum kannski föst í eigin hugsunum og kunnum ekki að segja við næsta mann. hey þú, mér finnst nú bara vænt um þig. Vil bara nota þetta tækifæri til að óska öllum sem ég þekki og líka þeim sem ég þekki ekki, Gleðileg jól og mín stærsta ósk er að allir finni þessa vellíðan sem fylgir því að gefa kærleika og kunna að taka við honum.Vonandi verður næsta ár og öll okkar framtíð sveipuð þessum frábæra sjóði sem öllum stendur opin.


Ástandsskoðun

Við lifum á undarlegum tímum. Sumir komast upp með að gera ótrúlegar vitleysur og menn bara gleyma því á 4 dögum, aðrir gera enga vitleysu og allir muna það. Þetta er eins og með lygina, það trúa henni allir, mátt alveg segja sannleikan en það breytir engu, engin trúir honum!! Við erum því miður fljót að gleyma og pólitíkin treystir á það. flestir búnir að gleyma að VG og Steingrímur gaf tvo banka, fattaði svo nokkrum mánuðum seinna að það var bannað með lögum, svo hann breytti lögunum afturvirt.Aukaatriði?, veit það ekki hitt veit ég að siðlaust er það. Svo eru það aldraðir, ég man vel þegar umræðan var á þinginu um lífeyrissjóði, þá var þráspurt um hvort ríkið ætlaði að komast hjá því að borga öldruðum ellilaun, nei var svarið, þetta átti að vera auka svo fólk gæti notið ellinnar. Hvílík lygi, lygi sem allir eru búnir að gleyma, enda er kerfið orðið það stórt að það fer allt í þá hít. Við verðum að vinda ofan af þessu, forgangsraða og muna að það eru reglur sem embættismenn eiga að fara eftir. Stundum gæti maður ætlað að kerfið hafi verið stofnað fyrir embættismennina,sjá umfjöllun um fjölfatlaða stúlku sem passar ekki inn í kerfið þeirra í RVK. Þrátt fyrir þetta er fullt af góðum hlutum í gangi, spurning hvort bros og gott skap sé ekki rétta meðalið


Eru kjaramál lífshættuleg?

Þá stendur hnífurin í kafi. Allir vilja allt og engin vill gefa eftir. Þegar upp er staðið verður sviðið allt "moldarsvað". Ljótur blettur sem engin vill taka ábyrgð á. Hvernig væri að einhver með smá dug komi með raunhæfa tillögu til launafólks. Tillögu sem þarf ekki endilega að vera eins fyrir alla en kosta það sama. Dæmi. Við bjóðu samning til þriggja ára með 4% hækkun árlega eða samtals 12%. Hvert félag ræður svo hvernig þeir aðlaga sína samninga þessum tölum. Ríkið gæti svo komið með útspil til að negla þetta. Nú eða tillöguna hanns Magga P, 350þúsun skattfrjálst,1/2% lækkun vaxta og 7% hækkun launa. Ekki ótrúlegt að þetta gæti gengið og í anda hugsunar um lága verðbólgu. Þó verkföll séu byrjuð vill engin fara í þau, Þetta á auðvitað bara að vera nauðvörn. Talandi um nauðvörn þá er ég ekki að skilja hvernig fólk með sjúkdóma sem getur kostað það lífið fái ekki sjálfsagða þjónustu vegna verkfalla. Það segir sig sjálft að ríkið er ekki að ganga á undan í gerð samninga við sitt fólk á undan frjálsu samningunum, samningum hjá fólki sem vinnur ekki hjá hinu upinbera. Það er hjákátlegt að láta sér detta það í hug, enda er það hin frjálsu markaður sem borgar laun hinna opinberu stétta. Nú er ég ekki á móti kjarabaráttu starfsmanna ríkissins (okkar) en skynsemi verur að ráða för. Getum ekki sett veika og lasburða sem skjöld fyrir suma hópa. Annars er það umhugsunnarefni að þrátt fyrir lækkun aðfluttningsgjalda virðist verð allment ekkert lækka. Getur verið að það hafi aldrei verið meininginn og þetta bara sniðið að versluninni? Það ætti þá ekki að vera neitt mál að borga betri laun. Auðvitað er samhengi í þessu, betri laun, meira verslað, sem ætti að lækka verð og allir fá meira fyrir sinn snúð!cool


Kjarafrekja

Veit ekki hvort menn skilja samhengi hlutana en ef einhver hópur tekur 60 kr. af 100 mögulegum eru bara 40 eftir. Þetta skilja flestir vonandi. Um síðustu áramót samþykktu stórir hópar launamanna 3,8% hækkun launa í trausti þess að það væri skynsamlegt og allir sem áttu ósamið færu sömu leið. En hvað gerðist? Jú, hópar eins og kennarar, sem sannanlega þurftu að fá leiðrétting sinna kjara, vildu hana strax. 27% og engar refjar. Það sem gerðist var að minnsta kosti tvennt. Það hækkuðu skattar á þá sem höfðu samið um rúm 3% og setti línu fyrir aðra hópa að þvinga fram meira en almennt var samið um. Núna eru læknar í skærum og háskóla lið að ráða ráðum sínum. Gott og vel en, þegar hinn almenni launþegi setur fram sínar kröfur í þessum sama dúr,25%, ja þá er eins og það sé alveg sérstök frekja. Þjóðfélagið ræður ekki við svona vitleysu. Hverslags tvískilningur er þetta eiginlega. Allir eru löngu búnir að gleyma að kaupmáttur byggist á verðmætaaukningu, ekki hótunum um vinnustöðvun. Og þá erum við komin að kjarna málssins. Ef 20% fá 60% af kökunni er hætt við vandræðum! Hin hliðin á bættum eða verri kjörum er hlutir eins og skattar. Ég get ekki betur séð en að "kerfið" sé orðið það stórt að við höfum ekki efni á að veita þjónustuna sem kerfið á að veita.Skattarnir eiga að tryggja okkur fyrir skakkaföllum eins og veikindum. Ef við verðum veik og þurfum að nota kerfið kostar það okkur stórpening. Þetta er bara aukaskattur og ekkert annað. Annað dæmi. Nú á að fella niður vörugjöld,í þessum kerfislið eru fjöldi manns sem gera fátt annað en reikna vörugjöld eftir reglum sem engin skilur. Allt í einu er þetta annars ágæta fólk verkefnalaust. Auðvitað á að nota tækifærið og minka kerfið þarna, er þó nokkuð viss um að það fær vinnu annarstaðar í kerfinu. Það er lögmál að halda kerfinu við og stækka ef hægt er!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Kosningar?

Kosningar til sveitarstjórna nálgast og við pælum í hvað best er að velja. Margir flottir frambjóðendur alveg burtséð frá því hvaða flokk þeir tilheyra. Við eigum það til að ákveða eitthvað vegna eigin skoðana. Til dæmis eru margir á móti A því hann tilheyri hinu liðinu. Nú er ég að tala bæði um þig og mig. Einn góður vinur minn bauð sig fram gegn öðrum í kosningum fyrir mörgum árum. Þessi hinn var yfirlýstur kommi og vinur minn var sko á móti þeim. Nema hvað að vinur minn vinnur kosninguna en, eftirá þurftu þeir að vinna saman í nokkra mánuði og viti menn, vinur minn fullyrti að ef hann hefði "þekkt" mótherjan hefði hann aldrei boðið fram gegn honum, "Hann er gegnheill öðlingur" fullyrti vinur minn við mig, kommi eða ekki kommi! Því miður er þetta of algengt að við dæmum eftir óljósum hugmyndum..Smile ..Ísland komið áfram, voooo.Gaman að þessu. Var að horfa á talninguna. Þetta vermir hjartað eins og fullt af allskonar smáu sem stóru. Gott að ekki er búið að negla fjárlög næsta árs, ef við vinnum!!!!!Cool Því ekki? Aftur í alvöruna... Kosningar = LÝÐRÆÐI. Það liggur ljóst fyrir eða hvað? Hvað er þetta lýðræði, handaband? Já, því við gerum ekkert með lýðræði nema í samráði við aðra. Við getum ekki gert hvað sem okkur dettur í hug, það yrði kaos úr því. Það er nefnilega þannig að hver og einn á sinn rétt sem annar getur ekki vaðið yfir, eða á ekki að geta en gerir samt. Dæmi; Ég get boðið fólki í heimsókn eins oft og ég kæri mig um, boði þeim í mína íbúð, boðið þeim kræsingar, talað við þá en, ekkert af þessu má trufla aðra í þeirra rétti til að geta sofið eða verið með sína gesti! Sama á við um umhverfið, ég tek mitt dót og held því til haga án truflunar fyrir aðra, aðrir sjá um sitt dót. Undarlegt ef ég þarf að taka til hjá mér og líka annara drasl. Þetta er hinsvegar staðreynd. Í pólitík verður svipað upp á teninginn, einn lofar sem annar á að framkvæma. Það verða góðir tímar þegar menn setjast niður og segja, ok, við höfum þetta til að spila úr, gerum nú gagn án þess að hlaða undir fáa vini og flokksfélaga. Ef það er almen regla er engin svikin. Menn vita þetta bara. Og hver segir að ég megi ekki láta mig dreyma? Þeir sem vita hvað innræting er eru í góðum málum þessa dagana. Þjóðinni er nokk sama hvort einhver fær dóm fyrir að setja landið á hausinn. Innrætingin er farinn að virka og menn hætta að mynda sér skoðun. Þetta er allt í fréttablaðinu og það frítt! En þeir sem en eru að pæla, farið í gegn um stefnuskrá flokkana. Hvað er mikið að frösum um að menn langi eða setji í forgang. Hendið því öllu út, hjá öllum flokkum, og þá stengur eftir vonandi eitthvað bitastætt sem varðar veginn. Við höfum hreinlega ekki efni á að vera sífelt með fólk sem athugar hvað er vinsælt og hvað ekki samkvæmt skoðanakönnun!!!!

Hvers er hvurs, nei ekki ég!

Nokkrar fréttir hafa verið að undanförnu um aðila sem reyna að narra börn upp í bíl. Þetta er auðvitað algerlega óhæft. Samt er það skrítið að opinberar tölur segja þetta hafa  minkað, "að meðaltali" eða að glæpir almennt séu í lámarki. Hvað þíðir svona í raun, jú prufum þetta á eigin skinni. Útidyrabjallan glymur og þú hraðar þér til dyra, fyrir utan stendur lögreglumaður/prestur og tilkynnir þér að barnið þitt hafi verið svívirt af ókunnum manni. Hann komst undan en málið er í rannsókn. Þú ert beðin að koma upp á spítala þar sem barnið er í rannsókn. Þekki engan sem hugsar núna, "að meðaltali átti ég að sleppa" Þeir ógæfumenn sem fremja svona glæp eru veikir og þurfa aðstoð. Einn svona glæpur er einum of mikið. Það er engin afsökun að við séum blönk eða að þetta var ekki tekið með í síðustu fjárlögum, við verðum að hjálpa þessum einstaklingum þannig að þeir verði afhuga svona sálarmorði. Ætla ekki að hætta mér þangað sem stríð geisa, þar virðist allir vera verðlausir , bæði börn og konur svo maður tali nú ekki um karlana.

Góðar fréttir af væntanlegri stækkun á þjóðarkökunni. Nú er lag að setja lög og reglur til að jafna ýmsa vankanta eins og tolla og gjöld. Það gengur ekki að einhver fái vernd fyrir sína vöru svo verðið haldist hátt eða að mismunandi virðisauki eftir því hvort vara er framleidd hér eða utanlands. Dæmi; prentuð vara innflutt ber 7% VASK en innlend prentun 25,5%. Veit að það verður ekki lækkun svo best væri að allir borgi þá 25,5%. Annað sem væri gráupplagt að gera núna þegar atvinna verðum meiri, að minka ríkisbáknið niður í eðlilega stærð. Gætum byrjað á mannanafnabatteríinu og námsgagnastofnun sem ekkert gefur út og nær ekki að hafa eftirlit með nokkrum sköpuðum hlut. Fleira mæti nefna,síðarGasp.


Ár og ónotaðir dagar framundan!

Já, nýtt ár mætt á svæðið. Var að hugsa hvort maður ætti að rifja upp væringar um útrásina, en, nei. nenni ekki lengur að ergja mig á því, það mundi engu breyta nema hvað ég færi í vont skap. Nú er það bara næstu skref eins og niðurfelling á fullt af skuldum, uppbygging fyrirtækja og ný hugsun í nýsköpun sem nýtist öllum til góða. Þurfum að vera svolítið opin og til í að fara út fyrir kassann. Ótrúlega sorglegt hvað margir farast í bílslysum, jafnvel bráðungt fólk, sárar en tárum taki. Ef við förum yfir stöðuna þá hafa ekki verið slys á keflavíkurveginum eftir að hann var tvöfaldaður, vitum auðvitað ekki hversu mörgum lífum var bjargað, en allir sem hafa ekið þessa leið geta þakkað fyrir. Þetta er fjárfesting sem borgar sig. Þá kemur upp spurning um aðra vegi á landinu. Ek sjálfur mjög oft um veginn yfir Hellisheiði að Selfoss. Umferðin er oft mjög mikil og fer hratt, þarf ekki mikið útaf að bera til að vandræði gætu átt sér stað. Þó það sé skrítið eru það þeir sem aka of hægt sem valda mestri hættu, það veldur ótrúlegri spennu hjá þeim sem eru fyrir aftan og margir reyna framúrakstur við vonlausar aðstæður. Það þíðir ekkert að segja, voða liggur öllum mikið á, meðalhraði við bestu aðstæður er 97 km, ef allir halda þeim hraða fer engin, eða mjög fáir framúr. Með meðalhraða er ég að tala um 93-99 km. EKKI 85km þar sem ekki er hægt að aka framúr og 110 þar sem tvær akreinar eru, og nú er ég að tala um sömu aðila! Varðandi Hjúkrunarheimilið í Hafnafirði, þeir sem þar búa eru þar vegna þess að þeir þurfa aðstoð við flesta hluti, þeir eru ekki fólk sem hringja í ráðherra eða ráðamenn yfirleitt, þess vegna eiga þeir sem stjórna þessum stofnunum að sjá um að tala fyrir hönd þessa fólks, ekki að binda það bara við rúmið, Skammist ykkar bara. Ef stjórnendurnir geta ekki hugsað um sitt fólk, farið bara að gera eitthvað annað, þessi framkoma er ekki boðleg hundum hvað þá meira. Skora á þá sem málið varða að ganga fram fyrir skjöldu, ekki bara á þessum stað heldur alstaðar þar sem pottur er brotin í umönnun aldraðra.

Uss, nú er ég allt of neikvæður, það er bara að stundum verður maður aðeins að blása. Sýnist reyndar að bjartsýni verði hlutskipti okkar á þessu ári miðað við hvernig atvinnulífið er að lifna við, góðu heilli. Ótrúlegt hvernig ferðamenn þyrpast til okkar og heillast af landinu og fólkinu sem hér býr. Verðu samt að vara okkur á að það verður ekki endalaust 10-15% aukning á ári. Væri gott að skulda ekki of mikið þegar hægist aðeins á! Hvet mig og alla að nota þetta flunkunýja ár til góðra verka.


Jólin 2013

Kominn annar dagur jóla, ótrúlegt hvað tíminn fer hratt yfir! En, ósköp eru þetta notalegir dagar,,,hjá mér! Ég get nefnilega bara talað fyrir mig. Var að hugsa í nótt kl.2 þegar ég heyrði í krökkum vera með læti út í þessum kulda, af hverju eru þau ekki heima í faðmi fjölskyldunnar. Sjálfsagt margar ástæður en vonandi finna flestir fyrir helgi jólanna, án áfengis og vímuefna, sérstaklega ef börn eru annars vegar. Þeir sem fóru í kirkju og hlustuðu á fagnaðarerindi jólanna líður örugglega vel í hjartanu, það er svo mikill erill flesta daga að við sjáum ekki hvað skiptir máli. Hvað skiptir þá svona miklu máli að við þurfum að staldra við? Jú,okkur þarf að líða vel með það sem við erum að gera, aðeins þannig getum við gefið öðrum af heilum hug. Nú er ég ekki að tala um gjafir og peninga, heldur það sem allir þurfa, hlýju, hvatningu, huggunarorð, bros. Þetta er ekki flókið og öllum líður vel að gefa þetta, en gerum við nóg, lætur okkur ekki betur að vera ópersónuleg og heimtufrek, ég veit það ekki, hver svari sjálfum sér! Við ný áramót er gott að setja sér markmið fyrir næsta ár. Löngu búin að sjá að það eru litlu markmiðin sem yfirleit nást, ekki það að stór markmið séu síðri. ég tek þessi litlu, brosið og þann pakka, lofa ekki að mér takist það en maður verður að reyna. Byrja á hverjum morgni með því að brosa í spegilinn. Einhverstaðar verður maður að byrja, ekki satt! Vonandi hafa allir notið jólanna, óska þér gleðilegra jóla og birtu og gleði á nýju ári.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband