Í framboði til stjórnlagaþingssins!

Að öllu jöfnu erum við ekki mikið að velta okkur uppúr stjórnarskránni. Hún er nú samt það sem við byggjum allar okkar gerði meira og minna á. Hún á að vernda okkur fyrir ranglæti og standa með okkur í að ná rétti okkar. Spurningin er,gerir hún þetta? Jú,ég held hún geri það í stórum dráttum. Við verðum þó að átta okkur á, að í grunnin er hún byggð á dönsku stjórnarskránni á meðan kóngurinn réði öllu. Ekki svo að skilja að nýi tímar séu svo miklu betri,bar öðruvísi. Við búum meira í hnapp,það hefur áhrif á eignarétt,hvernig við göngum um okkar eignir, og svo eignir nágrannans sem líka á sinn eignarrétt. Þannig er með flestar athafnir,þær hafa áhrif á nágranna og umhverfi. Hin hliðin á stjórnarskrá er hvernig við viljum að stjórnvöld stjórni. Held að flesti vilji að löggjafavald og framkvæmdavald séu tveir aðskildir hlutir sem eiga að vinna saman,ekki að framkvæmdavaldið stjórni löggjafavaldi. Þetta er allavega mín skoðun. Vonandi verða margar ferskar og góðar hugmyndir sem koma upp úr pottinum í þessu ferli. Ég vil gjarnan fá umboð til að hafa áhrif,til hagsbóta fyrir Íslendinga. Mitt mottó verður ætíð,Íslandi allt.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er afstaða þín til réttar einstaklinga til að  nýta auðlindir í eigu þjóðarinnar?

Jóhann Petersen (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 16:54

2 Smámynd: Guðmundur Gíslason

Það að þjóðin eigi auðlindir er ekki það sama og ekki megi nota þær. Mér finnst bara gott mál að nýta auðlindir allra. En það kemur þá eðlilegt gjald fyrir. Við verðum bara að passa uppá þær með framtíðina í huga og afkomendur okkar. Stjórnarskráin á að vera með skýrum ákvæðum að ekki megi selja auðlindir þjóðarinnar og að þessari grein verði ekki breytt. Við erum að tala um fiskimiðinn,fallvötnin,jarðhita,þjóðgarða og annað hvaðeina sem eðlilegt er að öll þjóðin eigi sameiginlega.

Guðmundur Gíslason, 18.10.2010 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband