14.10.2010 | 23:48
Stjórnlagaþing og framboðið
Þegar fólk velur þann sem fer með stjórnarskránna og hugsanlegar breytingar á henni,er eins gott að vanda valið. Auðvelt ef þú þekkir einhverja af góðu einu. Málið fer hinsvegar að vandast ef engin er i framboði sem þú veist ekki fyrir víst að muni vinna fyrir þig,ekki flokka eða samtök. Þá er um að gera að athuga hvað viðkomandi er að vilja á stjórnlagaþingið. Undirritaður frambjóðandi er 59 ára gamall. Fyrstu árin á vinnumarkaði vann ég ýmis störf,eins og sjómennsku,trésmíðar,rafvélavirkjun og frá 1967 hef ég unnið í prentgeiranum. Seinni árin er ég kominn í tölvutæknina og stafræna prentun. Menntun mín er grunnskólapróf ásamt ýmsum námskeiðum,t.d.bókhald fyrirtækja,nokkur námskeið um prent og tölvur.Ég hef ætið haft mikinn áhuga á landsmálum, þó ég hafi aldrei verið virkur í neinum stjórnmálaflokki. Strax eftir hrunið sendi ég skilaboð á alla þá sem voru þá á þingi og mótmælti því að barnabörnin okkar ættu að borga skuld sem engin okkar stofnaði til. Það er ein ástæða þess að ég býð mig fram,reyna að rétta hlut þeirra sem ekki getað borið hönd fyrir höfuð sér. Ég fer ekki þarna til að tryggja jöfnuð milli flokka og því um líkt. Hef reyndar ákveðnar hugmyndir um aukið lýðræði sem tengist breytingum á embættum, meira um það síðar. Hef engar aðrar hvatir með framboði mínu en að vinna þjóð minn gagn.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.