6.2.2013 | 21:12
Stjórnarskráinn mín!
Hvaða bull er þetta í manninum, hann á ekki stjórnarskránna einn. Alveg rétt!! Við eigum hanna öll en hún á að virka fyrir hvern og einn. Mér virðist sem stjórnlaganefndin bjóði fram stjórnarskrá sem verður bitbein dómsstóla um ókomna framtíð. Dæmi,
Öllum skal tryggður réttur til að lifa með reisn. Margbreytileiki mannlífsins skal virtur í hvívetna.
Ok. Hver á að meta þetta. Misvitrir stjórnmálamenn, eða forsetinn? nú, eða lögreglustjórinn á Akureyri? Hver á að sjá um að tryggja líf með reisn? VÍS eða Sjóvá. Hvað bull er þetta. Stjórnarskráin eru ekki lög heldur undirstaða laga. Annað; 113. gr. Stjórnarskrárbreytingar
Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytingar á stjórnarskrá skal það borið undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.
Hafi 5/6 hlutar þingmanna samþykkt frumvarpið getur Alþingi þó ákveðið að fella þjóðaratkvæðagreiðsluna niður og öðlast þá frumvarpið gildi engu að síður.
Verð sár inni í mér að hafa ekki komist sem fulltrúi í stjórnlagaþingið á sínum tíma, var bara ekki þekkt andlit. Þar að auki var þingið ólöglegt svo það breytir víst engu. Hefði aldrei unnið við undirstöðu þjóðfélagsins,stjórnarskránna, jafn ólöglega og raun varð á. Þessi grein er ekkert annað en valdarán, tek fram að ég er ekki löglærður, sé þó hér að með því að samþykkja þetta er ekkert mál fyrir þingið að gera nákvæmlega það sem þeim sýnist. Hugsa með hryllingi til þess ef þinginu nær að koma okkur í ESB,illu heilli, geta þeir bara afhent völdin til þingsins til Brussel. En, auðvitað er hin hliðin á þessu sem er, Alþingishúsið væri flott safnahús um tapað lýðræði, stundum get ég verið svo skammsýnn!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2013 | 20:43
Ekki meiri Icesave...
Eftir tvo daga frá dómsuppkvaðningu er þetta að verða hjáróma. Svo mikið er talað og skrifað um þetta mál. En, auðvitað eigum við að vera keik og ánægð. Ég og margir stóðum í kulda og trekki til að koma þessu máli á þann stað sem það endaði. Svona getur samtakamáttur áorkað miklu. Við getum lært ýmislegt af þessu ef við viljum. Að öllu jöfnu er ég þeirrar skoðunar að betra er að semja um hluti, versus að nota hnefaréttinn. Hitt er, ekki verður við það unað að annar samningsaðilinn noti fantabrögð. Þá er tími til að henda góðum vilja út um gluggann og nota þau löglegu vopn sem gefast. Hjá okkur var það einfaldlega þjóðin sem sagði "nei" við borgum ekki og gáfum fingur. ESA fór þá í mál í umboði EU og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Sem betur fer sáu dómarar réttlætið, þrátt fyrir að ég reikna með þrístingi frá þessum aðilum. Annars er það íhugunarefni að þegar við deilum við breta, höfum við oftast betur. Það er semsagt ekki endilega sá sem er mest ógnandi,með flottustu vopnin og miklu stærst á margan hátt, sem vinnur. Spurningin er að vera heiðarlegur en ákveðin, nota ekki hrottaskap, heldur réttlæti að vopni. Það er örugglega ekkert gaman fyrir breta og Hollendinga að tapa sífellt fyrir okkur(), og en síður er skemmtilegt fyrir venjulegt fólk sem tapaði sparifé sínu við hrun bankanna. Menn hafa þó bent á að tilboðið sem bankinn kom með var of góður til að vera sannur. Um þetta var skrifað, bæði í bretlandi og Hollandi fyrir hrun bankanna. Allavega, nú erum við á þeim stað að getað tekið risaskref framá við. Strax eftir næstu kosningar kemst loks á langþráð bjartsýni í landan. Ekki seinna en vænna. Sjálfsagt verða mörg mál sem menn deila um, en vonandi verður það innríkismál, má sem við getum sjálf leitt til líkta.Að lokum langar mig að segja um breta, mun ætíð nota lítin staf hér eftir í þeirra nafni!
15.1.2013 | 21:30
Mælanleg markmið? Hvaða, hvaða
Þeir sem setja sér markmið og standa við þau, rétti upp hönd,1,2,,3,,, fleiri, ekki, ææ. En hvað eru þá mælanleg markmið, hvað er maðurinn að tala um? Ég var staddur í Sviss fyrir mörgum árum. Fyrir daga evru, við vorum að aka frá Sviss til Ítalíu. Auðvitað sá ég að vöruverð á Ítalíu var miklu lægra en í Sviss, svo ég fór að spyrja mann og annan, hvort það væri ekki straumur fólks frá Sviss yfir landamærin, til að kaupa miklu ódýrari vöru á Ítalíu. Svarið var afdráttarlaust, nei, þeir versla heima. Fyrst fannst mér þetta hálf heimskulegt, en þegar ég fór að hugsa þetta í stærra samhengi, auðvitað verslarðu heima og allir hafa vinnu, verðbólgan er i lámarki, afgangur á vöruskiptum við útlönd, þjóðarskuldir lækka og hverfa. Allt þetta gætum við gert með því að setja okkur það markmið að versla Íslenskt, þó það sé aðeins dýrara, það græða allir. Þetta fellur undir mælanlegt markmið. Hvernig líst þér á? Ok, nokkrum líst ekkert á þetta, að kaup vöru fyrir 200, þegar hægt er að fá innflutta fyrir 170. En sú innflutta flutti út gjaldeyrir! Ég veit, margir segja, hvað með það, við þá segi ég, lesið hagtölur, reiknið, lærið. Þetta markmið kemur öllum við. Annars er hálf hálvitalegt að skrifa svona, það tekur engin mark á svona skrifum. Mæli með að sem flestir taki eldhúsinnréttinguna og hendi henni, og fái sér innflutta í staðinn, helst franska, þeim vantar svo gjaldeyrir,,,frá okkur!
10.1.2013 | 22:10
Kosningaár eða ár valfrelssis!
23.12.2012 | 10:06
Jóla-naflaskoðun
Jæja, eru ekki jólin kominn aftur, og nýbúinn. Við erum hér en þrátt fyrir hrakspár um endalok alls. Það má vel vera að þessu ljúki einhver tíma, en hver hefur svo sem sloppið lifandi frá þessu lífi. Við fæðumst,lifum og deyjum. Spurningin er þarna á milli. En, þar sem engin endalok komu, er þá ekki upplagt að líta framtíðina sem annað tækifæri. Tækifæri til að gera góða hluti fyrir okkur sjálf og aðra. allt sem við upplifum er ævintýri, njótum. Hætta að saka aðra um að vera ekki á sömu skoðun og við sjálf, líta með opnum hug, allt sem fyrir augu ber. finna sanngjarna og heiðarlega leið út úr þrasi og eigin egói. Við heyrum stundum af því að óheiðarlegir kónar ræna hjálparsamtök og þá sem eiga að njóta aðstoðar, ekki getum við bara hætt að hjálpa þess vegna, við finnum leið framhjá þessum köppum og komum aðstoðinni á réttan stað. Sé ekki að það sé munur á þessu og daglegu lífi á Íslandi, þar sem allt, allt of margir hafa ekki í sig og á. Þeir sem tóku matinn frá því fólki ætti að halda sig fjarri eða bjóða fram aðstoð. "Þeir vita sem eiga hér sök" En eins og ég sagði er þetta tími naflaskoðunar hjá hverjum og einum. Undirritaður er ekkert undanskilinn frekar en aðrir. Það er mín einlæga ósk að allir upplifi helgi jólanna, hver á sinn hátt, og munum að það er ekki gjöfin sem skipti máli heldur hugurinn á bak við gjöfina. Gleðileg jól kæru vinir.
7.11.2012 | 21:47
Að hafa skoðun, eða ekki skoðun!
5.6.2012 | 13:53
Hvers er lýðræðið?
12.5.2012 | 09:48
Verðbólgan og við hin!
Var að hugsa þegar ég skrifaði fyrirsögnina, það er engin að hlusta sem getur komið með úrlausn. Mjög margir hafa ritað flottar greinar um áhrif verðbólgu, samt er hún í hæstu hæðum. Flestir landsmenn eru með verðtryggð lán, þau hækka sem aldrei fyrr. Hvorki laun né verð á eignum hækkar. Á endanum fara allar eignir í fang banka (vogunarsjóða) og ríkis. Minnir óneitanlega á aðferðir austur þjóðverja undir kommum í stjórn. Það sem er það skrítna við þetta í allri umræðunni er, að fyrst er spáð í hvort viðkomandi bankastofnun geti tekið á sig tap af niðurfellingu verðbóta að hluta!!!! Opinber umræða er ekki um hvort fók almennt geti tekið á sig hækkun verðbóta. Sjáum bara hvað margir plumma sig og tökum eignina af hinum til okkar, því, fólk er ekki að borga af lánunum! Því miður hef ég séð að margir eru að komast í þrot, búnir með allt sparifé og aukalífeyir sem mátti taka út. Allir reiknuðu með að atvinnulífið væri komið á skrið þrem árum eftir hrun, sérstaklega þar sem undirstaðan er í fínu lagi, bæði stóriðja og sjávarútvegur. En, nei, hér skal setja fót fyrir og stoppa alla vitleysu. Nú er ég ekki að segja að menn eigi að vaða út í hvað sem er, en ef búið er að kanna,rannsaka,fá samþykki heimamanna,fjármagna, og teikna, má ætla að óhætt sé að stíga fram og samþykkja. Við erum ekki með mannskap í vinnu við Austurvöll til punts, enda engin sérstök augnayndi, nei, þeir eiga að vinna fyrir okkur, ekki gegn allri þjóðinni eins og nú er raunin. Auðvitað heyri ég eins og aðrir að stjórninn er í engu sambandi við þjóðina, það hinsvegar er engin afsökun fyrir því að gera ekki neitt. Skrítið að ef vart verður við leka á gjaldeyrishöftum, tekur bara nokkra klukkutíma að breyta lögum, en ef fólkið í landinu segir, það er vitlaust gefið í verðtryggingunni, gerist bara ekkert, ekki nokkur skapaður hlutur. Forsetisráðherra og Steini, segja bara að þetta sé plott hjá stjórnarandstöðunni. Varðandi kosningar til forseta. Við höfum ekkert að gera með fjölskyldumóðir með fimm sex börn á Bessastaði. Fólk verður aðeins að hugsa málið til enda. Hef ekkert á móti Þóru, flott sem sjónvarpskona og örugglega fleira sem hún tekur sér fyrir hendur. Gæti gefið kost á sér eftir sextán ár. Hitt er annað, hvern á að velja. Hef aldrei verið sérstakur aðdáandi Ólafs Ragnars, held þó að hann sé sá eini sem muni neita að skrifa undir samninginn við EU. En þangað ætla þessi stjórn að koma okkur, með góðu eða illu.
Ps. Pælið í þessu með lánin. Annar aðilinn er með allt á þurru plús lögfræðideildina!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.5.2012 kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2012 | 21:24
Fjölskyldan er besta eign hvers manns, og vinirnir líka!
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.1.2012 | 13:48
Fyrir alla munni, vinnum ekkert saman lagsi!
Því verður ekki mótmælt að í öllu fréttum eru sögur um menn sem ætla bara ekkert að vinna með hinum. Það er engu líkara en það séu saman tekin ráð að vera ósammála. Er að velta því fyrir mér hvort okkur skorti alla sýn, höldum að okkar skoðanir séu svona framúrskarandi að tillit til náungans sé bara vesen og undansláttur. Við skulum þá muna að skoðanir koma vegna annara. þær eru ekki sjálfsprotnar í eigin heila. Var að horfa á fréttir frá Kópavogi þar sem hluti bæjarfulltrúa neita bara að vinna vinnuna sýna. Pólitík er ekki að gera ekkert nema að fá borgað, heldur ber kosnum fulltrúum að standa við það sem þeir lofuðu þeim sem kusu þá! Menn geta bara ekki sagt, nei, tek ekki þátt í þessu. Þetta er ekki í boði! Það þýðir ekkert að segja,þeir vilja ekki taka undir okkar sjónarmið. Þeir eiga að finna flöt þar sem allir geta við unnað. Þannig á að vinna og þannig ætlast ég til að ráðnir og kosnir menn í vinnu hjá almenningi vinni. Ef þetta gengur ekki á að kalla inn varamenn, nú eða eins og krakkarnir segja"hringja í grenjubílinn" Hin hliðin á þessu öllu er svo fréttafluttningur. Skil að stöð í einkaeigu hygli sýnu fólki, meðvitað eða ekki. En RUV á ekki að sýna þá hlið. Ef þeir geta ekki verið óvilhallir þarf strax að skipta út yfirmönnum fréttastofu. Hluti af vandanum er fréttamenn sem virðast ekkert kunna eða vita um hvað málið snýst. Þar vantar alla forvinnu. Auðvitað á fréttastofan að vera með bestu fréttamenn sem völ er á og getu til að borga uppsett verð fyrir það. Held að með frábæru fólki sem vinnur alla vinnuna,líka forvinnu, mæti fá betri og hlutlausari fréttafluttning. Svo er það landsmálapólitíkin. Já, þvílík tík. Þar eru allir á móti öllum annars hefur þú verra af, frú forseti. Þetta nær auðvitað engri átt. Ef forsetisráðherra er að stjórna með því að lemja svona,á hún auðvitað að sjá að þetta er bara skelfing fyrir alla og biðja þjóðina afsökunnar og hætta. Við kærum okkur ekkert um ESB. Þetta er sóun á verðmætum sem við gætum svo vel notað heima. Veit ekki hvað þarf til að samfæra stjórninna. Nema þeir kunni ekki við að hætta eða þora ekki! Held að VG þurfi heldur betur að laga stefnuskránna. Gætu líka bætt við neðanmáls "látum auðvitað undan öllu sem samfylkingin segir" bara til hað halda stólnum og laununum og eftirlaununum og ferðalögunum, ó þetta ljúfa líf!!!!. En, nú eru kominn þáttaskil, hér með skora ég á alla að hætta að munnhöggvast og fara að taka tillit hvor til annars, getur orðið ótrúlegur árangur á skömmum tíma.